Myndasíða fjölskyldunnar að Sverristúni 3
Velkomin á síðuna okkar!


Blogg

17.3.2009

Skíðaferð

Jæja.. það kom að því.. ég gat ekki beðið lengur með að prófa að setja Jóhönnu Dagrúnu á skíði. 
Yndislegt veður í dag og fór ég snemma og sótti ormana á leikskólann og við drifum okkur upp á Skarð.  Ég var búin að vera þar með vinnunni um morgunin í frabæru veðri, mildu og fallegu.
Fyrsta klukkutímann var ég ein með krakkana, Dagbjartur í klofinu og Jóhanna Dagrún á bakinu:)  En svo kom Daði og þá drifum við Jóhönnu Dagrúnu á skíði.  Var búin að fjárfesta í stærri skíðum á Dagbjart sem hann svo bara prófaði og það með ágætum.  Jóhanna Dagrún stóð sig eins og hetja og fórum við örugglega hátt í 10 ferðir upp á topp byrjendalyftunnar.  Hún vildi ekki hætta, var farin að standa í lappirnar síðustu ferðarnar.  Þetta verður sko endurtekið!  Bróðir hennar er líka mjög duglegur og fóru þeir feðgar nokkrar ferðar í stóru lyftunni.
Setti inn myndir af ungunum.. njótið vel..
ykkar Auður

Skrifað 17.3.2009 kl. 21:42 af mér

Bein slóð á færslu

3 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

16.3.2009

Komnar nýjar myndir!

Hæ hæ!
Nú eru komin tvö ný albúm, skíðaferð í mars og febrúarmyndir!
Njótið vel!
Auður

Skrifað 16.3.2009 kl. 12:11 af mér

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 15
Gestir í dag: 6
Flettingar í gær: 24
Gestir í gær: 5
Samtals flettingar: 52977
Samtals gestir: 20804
Tölur uppfærðar: 19.3.2010 14:17:56



eXTReMe Tracker