10.2.2009
Sjaldséðir eru hvítir hrafnar...
... en mikið er af þeim svörtu þessa dagana.
Já ég hef ákveðið að blogga!
Merkilegt! Ég er heima lasin, það er kannski ástæðan.. búin að vera með magapest síðan á fösudaginn. Ekki skemmtileg, frekar en veikindi almennt. Fórum til Reykjavíkur á föstudaginn. Vorum með krakkana hjá Gunnlaugi hjartalækni. Jóhanna Dagrún var í tjékki og Dagbjartur fór líka í skoðun þar sem það heyrðust einhver hjartaóhljóð í hans hjarta um daginn. Það er bara pínu gat eftir hjá JDD sem ætti að lokast á næstu mánuðum og eigum við bara að koma með hana í eitt lokatjékk eftir ár. Dagbjartur var bara með það sem kallað er saklaus hjartahljóð og alveg heilbrigt hjarta og verður ekkert skoðaður meir. Svo þetta er allt á réttri leið og meira en það.
Við gerðum ekkert óskaplega mikið í borginni annað en elta fólkið í Grófarsmáranum. Mættum boðin sem óboðin á matartímum, fjölskylduþorrablót á laugardeginum, fórum æðislega ferð í Dýjadalinn þar sem þau eiga voða fínan bústað. Löbbuðum yfir frosið Hafravatnið að bústaðnum, með börnin í eftirdragi á STIGA sleða Stefaníu og fengum eitt kakó, eplaköku og kleinur..ummmm.. gat því miður afar lítið borðað. Var reyndar með eindæmum ódýr í rekstri matarlega séð þessa helgina he he he. Ferlegt að vera svona! Borðuðum svo góðann mat um kvöldið og enduðum svo í bíó með Eysteini og Maríu um kvöldið og systkinin í Grófarsmára pössuðu á meðan. Takk fyrir helgina öll sömul.
Nú neyðist ég til að hætta bráðum þar sem ég þarf að fara út og sækja börnin mín 2 á leikskólann.
Vona að einhver nenni inn að lesa þrátt fyrir margra mánaða pásu og mörg loforð um tíðari skrif.
ykkar Auður