28.6.2008
Jeminn..
dfg.. það er bara bloggleti allra tíma að hrjá mig!
Er ekki að standa mig frekar en fyrri daginn. Það er bara alltaf svo mikið að gera að ég gef mér ekki tíma til þess að blogga. Margt hefur að sjálfsögðu á daga okkar drifið undanfarið. Undanfarnir dagar hafa farið í að mála það sem eftir var að mála af húsinu okkar... ég byrjaði á þriðjudaginn og hélt að ég gæti bara málað þakskeggið sem snýr í austur því það spáði jú rigningu en viti menn, ég gat nánast klárað að mála allt.. á eiginlega bara eftir að fara eina umferð hérna að norðanverðu. Dagurinn í dag hefur svo farið í að gera huggulegt hérna í kring og á milli okkar Ollu sys.. við vorum mættar út snemma dags og vorum að án mikilla hléa til að verða fimm held ég bara. Fattaði það klukkan þrjú að við höfðum ekki tekið okkur hádegishlé. Núna er semsagt orðið ótrúlega fínt hérna úti hjá okkur.. búið að þökuleggja alveg helling og svo var kerrustæðið stækkað. Daði eyddi deginum sínum í göngu frá Karlsskála að Karlsstöðum í Vöðlavík með viðkomu hjá þýskri sprengjuflugvél. Hann kom svo heim um sjö leytið. Dagbjartur fór með Jónu ömmu sinnu um hádegisbilið í dag og fór hann svo á "þann Græna" og kom sofandi í land. Enda búið að vera á sjó í 3 tíma og mikið að gera. Jóhanna Dagrún var svo almennilega að sofna bara um hádegi og svaf til hálffjögur. Voðalega gott að hafa smá frið svo hægt væri að halda sig vel að verki í þökunum og fl.
Morgundagurinn fer vonandi bara í huggulegheit... vá nú er ég farin að dotta hérna í tölvunni,,, úff
þar til næst.. hafið það gott ..
ykkar Auður