Myndasíða fjölskyldunnar að Sverristúni 3
Velkomin á síðuna okkar!


Blogg

21.4.2008

Gott fjölskyldutjald / tjaldvagn

Jamms.. það er kominn sumarhugur í mann og nú langar mig bara í gamlan ódýran en sem virkar tjaldvagn til að fara með fjölskylduna í í ferðalög í sumar!  Ef ég fæ mér ekki gamlan ódýran sem virkar tjaldvagn leigi ég hann kannski bara eða kaupi mér gott fjölskyldutjald.  Er einhver sem lumar á öðru hvoru og langar að losna við?? Komst að því núna áðan að það er ekki lengur hægt að kaupa þessi klassísku fjölskyldutjöld hjá Seglagerðinni heldur þarf maður að láta sauma það alveg sér handa sér.. það eru bara allir komnir í eitthvað stærra.  Það er voða huggulegt að vera í tjaldi en ég held að það sé líka voða huggulegt að vera í einhverju aðeins hærra og með doldið pláss þegar maður er með tvo litla orma sem fylgir alls konar dót.
Daman er farin út að lúlla og ég ætla að taka til og láta mig dreyma um gamlan ódýran sem virkar tjaldvagn
Lifið heil
Auður

Skrifað 21.4.2008 kl. 10:02 af mér

Bein slóð á færslu

17 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

6.4.2008

Góðann daginn

Hér á bæ er dagurinn tekinn snemma.. þó of snemma fyrir minn smekk!  Jóhanna Dagrún svaf til dæmis alveg ljómandi vel frá því um hálf níu í gærkvöldi og svona c.a. fram að þeim tíma sem við fórum að sofa og vaknaði þá á klukkutíma fresti og svo bara á fætur klukkan hálf sex! Finnst þetta svolítið þreytandi. Hún fer vonandi í sitt eigið herbergi fyrir vikulokin.  
Annars er svo sem allt við það sama.  Hér er búið að vera ansi vetrarlegt veður frá því fyrir páska en í gær var þetta fallega veður með sól í heiði og átti nú að vera svoleiðs í dag líka en lítið ber á sólu.  Stefnan er annars sett á Skarðið í dag, fórum ekkert í gær og höfum ekki farið síðan um páskana. 
Fórum á útgáfutónleika Hlyns Ben í gærkvöldi sem haldnir voru í Egilsbúð.  Ljómandi fínt hjá honum, en hann var að gefa út disk sem heitir "Telling tales" og að sjálfsögðu fjárfestum við í dik og er hann bara hinn skemmtilegasti.  Hlynur er jú líka bara svo hress og skemmtileg manneskja.
Við vinirnir erum búin að hittast núna 2svar á skömmum tíma, Svenni átti afmæli þann 30. og bauð til samsætis og var það ljómandi gott að vanda.  Svo bauð Salný í mat á föstudagskvöldið og ekki var það síðra.  Takk takk!  Annars er alveg merkkilegt hvað við hittumst sjladan miðað við lengd á milli húsa, það eru allir svo uppteknir.. alveg ótrúlegt en það horfir vonandi til betri vegar með hællandi sól.
Jæja.. hætt að röfla.. hér er kominn kúkailmur í loftið og því best að fara að sinna ungviðinu!

Hafið það gott
ykkar Auður

Skrifað 6.4.2008 kl. 6:19 af mér

Bein slóð á færslu

5 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 6
Gestir í dag: 4
Flettingar í gær: 45
Gestir í gær: 5
Samtals flettingar: 53059
Samtals gestir: 20822
Tölur uppfærðar: 22.3.2010 06:28:59



eXTReMe Tracker