Myndasíða fjölskyldunnar að Sverristúni 3
Velkomin á síðuna okkar!


Blogg

26.2.2008

Vaknaðar

.. jamm hún Jóhanna Dagrún er farin að taka upp á því að vilja bara fara á fætur um sex þrjátíu á morgnana.. ekki við mikla lukku .
þar sem hún vaknar líka nokkrum sinnum á nóttunni.. ýmist til að drekka eða fá smá huggun og sofna svo.  En það er lítið við þessu að gera... hefði helst vilja koma henni í sér hérbergi en það er ekki voðalega mikið af þeim, en ef við fáum nú fataskápa í þvottahúsið og eonn stórann og góðann í okkar herbergi hugsa ég að við reynum að setja JDD í litla herbergið.  Man að Dagbjartur fór í eigið herbergi þegar hann var 6 mánaða og sváfu allir betur við það.. svo að kannski það virki líka á systur hans.  Annars er hún farin að skríða um allt og já hún skríður á fjórum fótum.. svona oftast allavegana.  Nú situr hún hérna á gólfinu og borðar seríós og spjallar við sjálfa sig.  Hún er svo sem ósköp duglega að dunda sér á gólfinu en á það þó til að vera allt of mikill mömmuskítur stundum.  Bróðir hennar er orðinn fínn af hlaupabólunni sem reyndar var að mínu mati bara væg.  Fékk margar bólur, klæjaði lítið, og fékk bara hita eina kvöldstund.  Hann fór því í leikskólann í morgun og naut vel enda orðinn leiður á að vera heima.  Á föstudag er Góukaffi í leikskólanum sem þýðir að mömmur, ömmur eða frænkur mega koma í smá kaffiheimsókn annað hvort um morguninn eða seinnipartinn.  Þetta var líka gert í tilefni bóndadagsins og þá fékk karlpeningurinn hákarl og síld og fleira góðagæti. 
Ætlum að skreppa suður um miðja mánuðinn og fara með JDD í tjékk til hjartalæknisins, vonandi hafa götin minnkað og allt á réttri leið.  Erum í pælingum um það hvenær við eigum að fara.. erfitt að fá íbúðir núna þegar svona nálægt er páskum og hvað þá að eitthvað sé laust um pálmasunnudagshelgina.. en við troðum okkur þá inn á ættingjana bara:) Ætlum að skreppa í IKEA og gera eitthvað huggulegt með DD líka.. bíó, leikhús eða húsdýragarðinn til dæmis.
Jæja ég ætla að segja þetta gott í bili.. ætla að gefa dótturinni smá meira seríós og kíkja á þá feðga og skríða undir sæng hjá þeim..
knús í tilefni dagsins míns..
ykkar Auður

Skrifað 26.2.2008 kl. 7:00 af mér

Bein slóð á færslu

12 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

18.2.2008

Hlaupabóla !!!

Jebb.. það hefur verið að ganga hlaupabóla á leikskólanum..  í fyrrakvöld sá ég að Dagbjartur var búinn að klóra sér til sárs í hársverðinum en fattaði nú ekki að þetta gæti verið bólan, svo vöknuðum við í gærmorgun og Daði fer að tala um bólu á DD og já þá fattaði ég að það væri líklega hlaupabólan og síðan hefur bólunum fjölgað og þær stækkað... úff löng setning þetta.  Já hann er semsagt með þessa bólu en systir hans hefur sloppið hingað til.  Las einhversstaðar að börn sem væru á brjósti væri í minni hættu á að fá bóluna.. og ég kalla hana góða að sleppa miðað við hversu duglegur bróðir hennar er að knúsa hana og kjassa.  Svo klæjar manni allsstaðar sjálfum .. held samt að ég hljóti að vera búin að fá bóluna. 
Annars er allt við það sama... við reynum að halda áfram að gera fínt hjá okkur en oftar en ekki er það sem við ætlum að fá hjá IKEA ekki til og kemur ekki fyrr en eftir nokkrar vikur EN við erum ekki óvön því að hlutirnir taki tíma.
Var með smá saumó á þriðjudaginn og fyrir þann hitting átti að vera búi að koma hurð á baðherbergið svo fólk gæti nú nýtt sér salernið í friði.  Við kepptumst við að mála og mála og svo var hurðin sett í korter í klúbb.. en viti menn hún passaði ekki.. týpískt.. svo að nú er tilraun tvö fyrir næsta klúb sem er á fimmtudaginn.
Jæja börnin voru að sofna og tími til kominn að næra sig... eða nei annars.. kom ekki DD fram.. greinilega ekki sofnaður ha h ah a já það er ekkert uppeldi á þessum börnum .. klukkan orðin tíu og meira en það.  Nú þá held ég smá áfram.. DD er byrjaður í íþróttaskóla og var rosa flottur og ég stolt eftir fyrsta tímann.
Jóhanna Dagrún er farin að toga sig áfram um öll gólf og standa upp í rúminu sínu og þar sem hún nær góðu taki.  Hún er ónýt að borða og þarf að troða í hana rjóma í hvert mál.  Ætlum að kíkja til hjartalæknisins um miðjan mars og athuga hvort götin eru enn til staðar.
Jæja ætla að kíkja aðeins á þá feðga..
skrifa fljótt aftur..
ykkar Auður

Skrifað 18.2.2008 kl. 22:16 af mér

Bein slóð á færslu

7 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

3.2.2008

Snjór og meiri snjór

Já hér hefur sko aldeilis snjóað síðustu dægur.  já og bara verið vont veður... Daði fór meira að segja ekki í vinnuna á Reyðarfjörð á fimmtudaginn og það lítur allt eins út að hann fari ekki á morgun.. maður hefur bara ekki fengið svona blendbel í mörg ár.. tja ekki í svona margar daga allavegana.  Mér líkar þetta svo sem ekki illa.. mun betra en þetta hálka snjór meiri hálka enginn snjór og bla bla. Það er vetur.  Við förum alveg í barndóm við Daði þegar veðrið er svona.. gerðum snjóhús með Dagbjarti og þótti það ekki síður skemmtilegt en honum.. svo gerum við snjókalla þegar til þess viðrar og setjum kertaljós í kúluhús úti í garði.  Við Daði fórum annars í gönguferð í Seldalinn í dag.. fórum bara tvö vopnuð snjóþrúgum og stöfum.  Aðal tilgangur ferðarinnar inn í bústað var að reyna að finna myndavélina okkar... já hún er búin að vera týnd síðan um síðustu helgi... man eftir henni í skottinu á bílnum þegar við erum að pakka okkur saman eftir skíðadag á Skarðinu.. en svo ekki meir og ég þoli það ekki.. er alltaf að leita og leita og æ já ég kann bara illa við þetta.  Sakna mest þeirra mynda sem komnar voru í vélina en það þýðir víst ekki að gráta þetta.. þetta eru dauður hlutur .. og þó ..
Vorum á Kommablóti í gærkveldi.. skemmtilegt var það.  Það var ekta blótsveður.. mikil ofankoma og vindur.. semsagt blindbylur!  HRESSANDI.
Jæja ætla að draga Daða með mér inn að sofa.. í honum heyrist innan úr herbergi hjá DD þar sem þeir báðir eru steinsofnaðir.

Lifið heil og borðið alveg á ykkur BOLLUgat á morgun!
Ætla að baka bollur í fyrramálið svo endilega kíkið í kaffi.. eða allavegana bollur og mjólk.
knús Auður

Skrifað 3.2.2008 kl. 23:20 af mér

Bein slóð á færslu

3 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 18
Gestir í dag: 4
Flettingar í gær: 54
Gestir í gær: 3
Samtals flettingar: 52956
Samtals gestir: 20797
Tölur uppfærðar: 18.3.2010 18:56:26



eXTReMe Tracker