20.1.2008
Blindbylur!
Klukkan er að verða hálfátta hérna á þessum sunnudagsmorgni að Sverristúni 3. Jóhanna Dagrún situr hér á gólfinu og leikur sér og spjallar við sjálfa sig. Var vöknuð um sjö. Dagbjartur liggur sofandi inn í rúmi og má sofa dálítið lengur.. það er jú sunnudagur og hann fór seint að sofa í gær. Daði fór í óveðursútkall klukkan sex í morgun og er einhversstaðar úti í bylnum og ég er þess nokkuð viss að honum leiðist það ekki. Ekki þannig meint að það sé bara fínt að hafa slæmt veður.. ææ ég dreg þetta til baka..svaka roka, það er öskubylur og ekkert fínt að vera úti. Hér fara hviður í 34 metra á sekúndu og mælist stöðugur vindur 15 metrar, og svo kafsnjóar oní þetta allt saman.
Freyr kom með foreldrum sínum í gærkvöldi og snæddi með okkur slátur.. ummm erum búin að ætla að bjóða þeim í mat í marga mánuði.. ef það fer ekki bara að nálgast árið.. jú örugglega. Matur bragðaðist ljómandi vel og voru allir mjög saddir eins og við er að búast þegar maður gúffar í sig slátri og drekkur mikla ískalda mjólk með.. ætla aðeins að gefa JDD að drekka og held svo kannski áfram.. ... .. .. .. .. .búnar.
Erum búin að fara 2 á skíði með Dagbjart í vetur. Fór með pabba sínum í lyftuna og var bara hinn ánægðasi þrátt fyrir smá byrjunrörugleika við að koma sér í klossa og tilheyrandi. Stefnum svo á að vera dugleg að fara með.. getum bara mæst á miðri leið þegar DD er að koma úr vinnunni..
meira síðar.. ætla að fóðra þá stuttu betur..
vetrarkveðja auður
10.1.2008
Það er gott að vera heima
Já það er bara með því betra að vera heima hjá sér.. og hafa huggó eins og sonur minn segir.
Daði er í RVK.. skutlaði honum í flug í morgun, kemur aftur á laugardaginn og ég er strax farin að sakna hans. Er jú í fyrsta skipti sem ég er ein HEIMA með þau bæði...svona allan daginn og nóttina. En það er ekki svo mikið mál þannig. JDD datt nú í hug samt að hafna brjóstinu í dag. Drakk í morgun áður en við fórum í Héraðið og svo vildi hún ekkert fyrr en í kvöld þegar hún fór að sofa.. en ég vona að þetta hafi bara verið einhverjir dyntir sem nú eru búnir.
Við ætlum að reyna að vera dugleg að fara með soninn á skíði í vetur. Hann á orðið allar græjur þökk sé fjölskyldum okkar og jólunum. Fórum sjálf á mánudagskvöldið.. það var bara æði..logn pínu frost og heiðskýrt.. bara dásamlegt!!!
Var að horfa á húsmæðurnar.. finnst þær skemmtilegar og er það eina sjónvarpsefnið sem ég fylgist með.. eða reyndar er ég dottin inn í Glæðinn danska líka. Það er ótrúelga lítið um sjónvarpsgláp á þessum bænum, sem erreyndar bara gott en mikið er nú samt notalegt að sofna fyrir framan kassann:)
jæja er dottinn inn ienhvern þátt.. he he
lifið heil!
auður
2.1.2008
Gleðilegt árið og takk fyrir þau sem liðin eru!
RÚM ÓSKAST HANDA DAGBJARTI:)
Jamms.. ef einhver af þeim sem lesa hér eiga rúm í fórum sínum eða vita um eitthvað sem ekki er í notkun og við getum fengið væri það ógurlega vel þegið.. ég held að það sé kominn tími á að Dagbjartur fari úr rimlarúminu sínu.. hann vill ekki fara að sofa í því og ég veit auðvitað að það er best að vera í mömmu og pabba rúmi en ég held að honum finnst líka óþægilegt að vera fastur í rimlarúminu og þá er líka hægt að leggjast bara hjá honum í hans eigið rúm þannig að hann sofni þar.... en já stutt í bili...
er að fóðra Jóhönnu Dagrúnu :) er að reyna að fita hana með rjóma í hvert mál:)
knús Auður
Fara á upphafssíðu