Myndasíða fjölskyldunnar að Sverristúni 3
Velkomin á síðuna okkar!


Blogg

9.1.2010

Hejsa!

Jæja er ekki kominn tími á skrif hér!
Gleðilegt ár kæru lesendur, vona að árið verði ykkur öllum til heilla.
Blíða hefur verið allsráðandi hér á nýju ári, frost hefur verið töluvert en hiti um 6 gráður í dag.  Glitský á himni og sól skín á fjallatoppa.
Við erum búin að fara 2 á skíði í vetur, krakkarnir stóðu sig sérlega vel og hafa mjög gaman af því að vera í fjallinu. Dagbjartur er farinn að renna sér meira sjálfur og fer sjálfur upp með lyftunni.  Jóhanna Dagrún er mjög áhugasöm og rennir sér eins og herforingi í beisli á undan okkur. 
Dagurinn í dag fór að mestu í frágang eftir flugeldasölu björgunarsveitarinnar og því var ekkert farið á skíði í dag.  Reynum kannski að taka daginn snemma á morgun og skreppum í fjallið.Maður verður að nýta þessa góðu daga sem koma.
Krakkarnir eru nú á Ekrunni þar sem þau vildu bara alls ekki fara heim að gönguferð lokinni í dag.  Við foreldrarnir sitjum því hér í sitthvorri tölvunni.. þó ekki á snjáldurskinnu emoticon  og vöfrum um hina stóru heima veraldarvefsins. Daði skoðar einhverjar fínar græjur og ég líka reyndar, alltaf gaman að láta sig dreymaemoticon 
Hugsa oft til þess að ég sakna þess að blogga, var reyndar búin að minnka það mjög mikið áður en snjáldrið kom til en ég held að það eigi þátt í ansi mörgum bloggandlátum.  Mig langar ekki til þess að láta það gerast hér og er þetta svona smá skref í þá átt.
Finnst þetta frábær miðill svona þegar maður býr t.d. fjarri vinum og fjölskyldu en ég finn ekki eins mikla þörf fyrir að blogga nú. Vona að andinn komi þó yfir mig annað slagið.  
Ætla að segja þetta gott núna,
lfið heill
ykkar Auður
 

Skrifað 9.1.2010 kl. 17:21 af mér

Bein slóð á færslu

3 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

29.12.2009

Ótitlað

Kæru vinir og ættingjar

OKKAR BESTU ÓSKIR UM GLEÐILEG JÓL OG HEILLARÍKT KOMANDI ÁR

Þökkum allt gamalt og gott!

er að reyna að setja inn mynd er er greinilega ekki svo skýr að geta það!



Skrifað 29.12.2009 kl. 17:44 af mér

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

11.12.2009

Já það er rétt...

... Auður er búin að greiða árgjaldið og þá ætti að vera hægt að kíkja hérna inn :)
Þessi síða hefur ekki verið virk mjög mjög lengi en ætla ég að ráða bót á því vonandi :)
Hef þetta ekki lengra í bili.. en kíkið við aftur endilega
sumarblíða
Auður

Skrifað 11.12.2009 kl. 11:38 af mér

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 17
Gestir í dag: 3
Flettingar í gær: 27
Gestir í gær: 8
Samtals flettingar: 51793
Samtals gestir: 20588
Tölur uppfærðar: 9.2.2010 17:08:13



eXTReMe Tracker